Boltastrákur Palace varð bjargvættur Liverpool

Og hvort hann gerði sitt besta! Varði ítrekað meistaralega og var pollslakur þrátt fyrir að allra augu væru á honum.

„Það væri ótrúlegt að fá annan leik í ensku úrvalsdeildinni með Liverpool á Anfield,“ sagði markvörðurinn Freddie Woodman, eftir að hann kom inn á í leik Everton og Liverpool um fyrri helgi vegna meiðsla Giorgi Mamardashvili. 

Draumur hans rættist svo sannarlega um helgina - og einmitt gegn Crystal Palace! Ekki aðeins það, heldur var Woodman útnefndur maður leiksins eftir frábæra frammistöðu.

Woodman ólst upp sem stuðningsmaður Crystal Palace. Hann hóf feril sinn þar og varð m.a. enskur unglingalandsliðsmarkvörður.

Hann gekk til liðs við Newcastle árið 2013 en fékk aðeins fjóra leiki með aðalliðinu á átta árum. Var lánaður til annarra liða sex sinnum á þessum átta árum áður en hann var seldur til Preston þar sem hann varð aðalmarkvörður. 

Þegar hann kom til Liverpool sl. sumar gerði hann sér litlar vonir um að fá tækifæri  „Hugsaði ég nokkurn tímann að ég myndi spila fyrir Liverpool í úrvalsdeildinni? Sennilega ekki, en ef ég yrði kallaður til vildi ég bara gera mitt besta.“

Og hvort hann gerði sitt besta! Varði ítrekað meistaralega og var pollslakur þrátt fyrir að allra augu væru á honum.

No comments yet